Pétur Rúðrik Guðmundsson
Sálarrækt - Einkatímar
Heilun – Ljós kærleikans (12.000 – 45mín.)
- Í heilun er unnið með orkuflæði líkamans og það ójafnvægi sem getur myndast þar.
- Með því að jafna þetta orkuflæði þar sem orkustöðvarnar eru virkjaðar og hreinsaðar þá um leið verður meira jafnvægi í lífsorkunni sem streymir í gegnum okkur og umhverfis okkur.
- Heilun eflir og styrkir líkama, huga og sál.
Andleg þjálfun – Spiritual Coach (12.000 – 45mín.)
- Við búum til persónulegt rými fyrir þig þar sem við vinnum með það sem er lifandi hjá þér hverju sinni.
- Við skoðum það sem liggur þér á hjarta og nýtum til þess samtal, virka nærveru, hlustun og mjúka orkuleiðsögn sem skapar ró, skýrleika og tengingu við það sem þú vilt skoða nánar.
Sálarhreinsun – Virkjun Sálarinnar (12.000 – 45mín.)
- Unnið er með Jesúorkuna til að hreinsa og vernda líkama, huga og sál.
- Þetta er Sálarrækt í kærleiksorku sem bæði hreinsar og vekur sál okkar til lífsins.
- Í gegnum lífið þá er ýmislegt sem við göngum í gegnum og á þeirri vegferð söfnum við allskonar drasli sem við gleymum að flokka, henda og hreinsa ef það á við.
- Við búum okkur til ýmsar afsakanir til að sleppa við tiltektina og allskonar hugsanir leita á okkur tengt þessu.
- Jesúorkan er öflug tiltekt sem ég mæli með af þú kannast við svona drasl í rýminu hjá þér.

