Hanna Lára Scheving

Ég er lærð stuðningsfulltrúi og leikskólaliði.

Ég hef verið skyggn síðan ég var barn.  

Hef klárað Reiki 1, 2 og 3 ásamt réttindum sem Reikimeistari.  Er búin að fara á námskeið í transmiðlun, námskeið í þjálfun miðilshæfileikans, setið í þróunarhópum og bænahringjum hjá Sálarrannsóknarfélagi Suðurnesja. Lærði hjá Ásthildi, Ragnhildi og Dagbjörtu.  

Ég hef tekið þátt í heimsljósmessunni með miðlun og tarot spálestur.

Ég vinn sem spámiðill og sambandsmiðill.  Við miðlun nota ég tarotspilin.

Get líka gefið heilun. Við heilun koma líka stundum skilaboð til miðlunar.

Previous
Previous

Dagbjört Magnúsdóttir

Next
Next

Hrafnkatla Valgeirsdóttir