Back to All Events
Aðgangseyrir 2.000,-
Greitt við innganginn.
---Frítt fyrir félagsmenn---
Eftir 20 ára andlegt ferðalag hefur margt breyst hjá okkur. Frá því að vera yfirkeyrðir verkefnastjórar með heilun og miðlun á hliðarlínunni til að geta hjálpað öðrum, yfir í að reka andlega akademíu með fókus á persónulega umbreytingu.
Við höfum gert margar áhugaverðar uppgötvanir á ferðalaginu og um leið hefur sýnin á andlega vinnu og andleg mál yfir höfuð þroskast og þróast. Við segjum frá því hvernig ljóskóðar breyttu lífi okkar, hvernig Metatron erkiengill varð skólastjóri Starcodes Academy og hvað gerðist þegar við uppgötvuðum okkar eigin magnaða kraft.

