Jóga/ djúpslökun með Dagbjörtu.
Á þessu námskeiði vinnur Dagbjört saman með jóga, dáleiðslu og heilun.
Í jóga erum við að losa um streitu, liðka og styrkja líkamann.
Í heilun vinnum við með orkuflæði líkamans, tengjast heilunarorkunni til að losa um neikvæðar tilfinningar sem setjast í líkama okkar, aukum næmi og skynjun.
Í dáleiðslu skoðum við hvernig við hugsum um okkur sjálf, hvað erum við að skapa með hugsunum okkar, við horfumst í augu við neikvæðar tilfinningar og ákveðum hvað við viljum skapa. Öll viljum við skapa gleði, jafnvægi og sátt í lífinu.
Hver tími byrjar á öndunaræfingum sem leiða okkur innn í jókaflæði, endum á að finna innri ró og djúpa slökun.
Hentar bæði byrjendum sem lengra komnum.
4 vikna námskeið á þriðjudögum kl 19:30 kr. 12.000,-
skráning á heimasíðu félagsins. https://www.srfsn.is/namskei
Eða í síma 768-3348
Dagbjört hefur sótt fjölda námskeiða í andlegum málum, farið til Arthur Findlay Spiritualist college í transmiðlun, kennt Reiki í 10 ár sjálfsdáleiðslu frá 2016, verið með transþróun, auk þess að bjóða upp á einkatíma hjá félaginu á miðvikudögum í heilun, meðferðardáleiðslu og svæðanuddi.
Back to All Events

