Back to All Events

Vitundin í Vatninu / Ask The Water - Bryndís Fjóla

  • Sálarrannsóknarfélag Suðurnesja 13 Víkurbraut Keflavík, Reykjanesbær, 230 Iceland (map)

Skapandi vinnustofa 

Fjöldi þátttakenda er 8 manns

Verð 18.000,-

Skráning á www.srfsn.is/namskei

Mæting kl, 12:45.

Bryndís Fjóla hefur safnað vatni úr fallegum uppsprettum, lækjum, ám, fossum og jökull fjlótum á Íslandi. Hún kynnir þig fyrir vatninu í fallegum glerglösum, ásamt blýanti, pensli, vatnslitapallettu og vönduðum pappír til að vinna á.

Bryndís Fjóla vinnur með hreina íslenska vatnið sem einstaka og verðmæta auðlind með frásagnagáfu. Vatnið hefur sýnt að það getur vakið öll skilningarvit þín, skynjun þín meðtekur hvaðan vatnið er, frá hvaða læk, uppsprettu eða jökulfjóti. Hvað vill  vatnið segja þér um sig eða þig.
Þú munt koma þér á óvart með þeirri einstöku tilfinningu sem vatnið getur fært þér.

Vatnið leiðir þig, losar um hömlur og veitir þér einstakt upphaf í vinnu með lit, texta eða hönnun.

Þú getur fundið lyktina af vatninu, dýft penslinum í það og leyft því að flæða frjálslega á vatnslitapallettuna – þannig fær vatnið að tjá sig til þín og með þér á pappírnum.

Þetta hvetur þátttakendur til að virkja innsæi sitt, samband við náttúruvætti, náttúruna og okkur sjálf.  Það er afar mikilvægt að við eflum hæfileika okkar til þess að lesa í náttúruna og umvefja hana með virðingu ábyrgð  – ekki síst fyrir komandi kynslóðir.

Verkefnið býður upp á jafnan aðgang fyrir alla, óháð menningu og tungumáli, til að túlka umhverfi sitt.

Umsögn frá Þórunni Björnsdóttir, frá vinnustofu í London 2024.  

Að vinna með vatn opnaði fyrir mér nýja vídd í tengingu minni við náttúruna. Það að eitthvað eins hversdagslegt og vatn beri með sér minningar, tilfinningar og náttúruvætti jók skilning minn og innsæi á að hver einasti hluti af náttúrunni skiptir máli. Ég koma af námskeiðinu með dýpra innsæi og skynjun á náttúrunni og nátturuvættunum sem búa í henni. 

https://www.huldustigur.is/

https://www.facebook.com/profile.php?id=61574561281705

Previous
Previous
19 February

Hvernig lesum við í náttúruna og hulduheima Íslands - Kynning / Fyrirlestur

Next
Next
21 February

Skyggnilýsing Ragnhildur og Ásthildur