Back to All Events

Hvernig lesum við í náttúruna og hulduheima Íslands - Kynning / Fyrirlestur

  • Sálarrannsóknarfélag Suðurnesja 13 Víkurbraut Keflavík, Reykjanesbær, 230 Iceland (map)

Hvernig lesum við í náttúruna og hulduheima Íslands.

Leitum í “frumbyggjan” okkar.

Aðgangur 2.000,- / 1.000,- fyrir félagsmenn, greitt við innganginn.

Húsið opnar kl, 19:30.

Bryndís Fjóla Pétursdóttir Garðyrkjufræðingur, Bowentæknir og Völva ætlar að fjalla um hvað það er, að lesa og skynja náttúruna og hvernig við getum bætt vitund okkar. 

Óáþreifanlegur menningararfur er tengist álfum og huldufólki, minnir okkur á að við getum öll skynjað fegurð náttúruna eins og forfeður okkar.  

Að finna og viðurkenna að við erum hluti af náttúrufegurð er alltaf til bóta fyrir hulduheima landsins og hvetur til betri umgengni við landið. 

Áhrif af þessari skynjun hefur oft ratað í ýmis listform, leiklist, málverk, ritlist, tónlist og siði og venjur okkar þjóðar. 


Bryndís Fjóla er stofnandi og verkefnastjóri Huldustígs ehf. 

huldustigur.is 

Bryndís Fjóla stýrir öllum verkefnum sínum frá Akureyri, með áherslu á fræðslu og almenna þekkingu um hin óáþreifanlega menningararf sem tengist huldufólki, álfum, tröllum, hafmeyjum og drekum.

Previous
Previous
18 February

Námskeið Transmiðlun Dagbjört. 3 af 6

Next
Next
21 February

Vitundin í Vatninu / Ask The Water - Bryndís Fjóla