Back to All Events

Sálarsnerting – Fæðing og lærdómur - fyrsta kvöldið

  • Sálarrannsóknarfélag Suðurnesja 13 Víkurbraut Keflavík, Reykjanesbær, 230 Iceland (map)

Námskeið 1 af 3.

Sálarsnerting – Fæðing og lærdómur (3x3klst. = 33.000 / Hámark 12 þátttakendur)

Við fæðumst í þennan heim til að uppgötva hver við erum og notum til þess skynfæri okkar. Sálarsnertingin ýtir okkur í átt að vakningu.

https://www.srfsn.is/namskei

https://noona.is/solmaniehf

Sálarrækt – Námskeið

Sálarrækt – Andleg vitundarvakning

Þrjú stig: 01-Sálarsnerting / 02-Sálarvakning / 03-Sálarvitund

Hvort sem þú klárar eingöngu upphafsnámskeiðið (Sálarsnerting – Fæðing og lærdómur) og lætur þar við sitja eða klárar öll námskeiðin þá er þetta vegferð sem nærir líkama, huga og SÁL. 

Lýsing

Námskeið í sálarrækt sem nærir ljós þitt og lýsir upp vegferð þína!

Við lifum í heimi þar sem við höfum lært að treysta fyrst og fremst á skilningarvit okkar til að skilja tilveruna. Okkur hefur verið kennt að sjá, heyra, snerta, finna lykt og bragð – og út frá þessum fimm skilningarvitum mótum við sjálfsmynd okkar, tengsl og sýn á lífið sjálft.

Þessi skilningarvit eru dásamleg og nauðsynleg. Þau eru verkfæri sem gera okkur kleift að upplifa heiminn, læra, tengjast og þroskast. Án þeirra væri lífið hér óhugsandi. Þau hafa leitt okkur langt á vegferð okkar.

En hvað ef…

Margir finna djúpt innra með sér að eitthvað vanti. Að þrátt fyrir alla þekkingu, alla þá möguleika sem fylgir henni og allt sem við höfum byggt upp, þá ríkir enn óþarfa þjáning, sundrung og skortur í heiminum – jafnvel þar sem nóg er til af öllu handa öllum.

Hvað ef það er hægt að breyta þessu og þá hvernig?


Á þessu námskeiði göngum við út frá þeirri djúpu sannfæringu að þú sért meira.

Líkami þinn er farartæki. Hugur þinn er verkfæri.

En kjarni þinn – sálin – er ljósið sem gefur þessu öllu merkingu.


Þegar þú tengist sálinni vaknar innri kraftur sem breytir ekki aðeins þér, heldur hefur áhrif langt út fyrir þig sjálfa/n – til þinna nánustu og til framtíðarkynslóða.

Þú breytir heiminum með því að finna sjálfan þig og leyfa ljósinu þínu að skína – svo að aðrir fái leyfi til að gera slíkt hið sama.

Á þessu námskeiði förum við saman í innra ferðalag.

Við beinum athyglinni inn á við.

Við hlustum á hjartað.

Við leyfum sálinni að leiða.

Líkami þinn, hugur þinn og skilningarvitin hafa leitt þig hingað og ef þú upplifir líf þitt í jafnvægi og flæði – þá ber því að fagna. En ef eitthvað innra með þér kallar á dýpri tengingu – þá eru þessi námskeið tilvalið rými til að skoða þessa tilfinningu betur.

Alveg sama hvar þú ert á vegferð þinni, þá ertu velkomin(n) að stíga inn í þetta rými með okkur. Þú færð tækifæri að tengjast kjarnanum þínum á ný þar sem þú færð tækifæri til að leyfa sálinni að taka við taumunum og leiðir þig og þína í átt að heimi þar sem kærleikur og auðmýkt er ríkjandi.

Kjarnavinnan í þessum námskeiðum fer fram í gegnum hugleiðslur, gagnræður, andlega leiðsögn, markþjálfun, einstaklings- og hópavinnu.

"Our deepest fear"— Marianne Williamson

Our deepest fear is not that we are inadequate.

Our deepest fear is that we are powerful beyond measure.

It is our light not our darkness that most frightens us.

We ask ourselves, who am I to be brilliant, gorgeous,

talented and fabulous?


Actually, who are you not to be?

You are a child of God.

Your playing small does not serve the world.

There's nothing enlightened about shrinking so that other

people won't feel insecure around you.


We were born to make manifest the glory of

God that is within us.

It's not just in some of us; it's in everyone.

And as we let our own light shine,

we unconsciously give other people

permission to do the same.

As we are liberated from our own fear,

Our presence automatically liberates others.

Previous
Previous
21 April

Hugleiðslu og heilunarstund

Next
Next
26 April

Jesúhugleiðsla - Lífsins ljós