Back to All Events

Sálarrækt – Andleg vitundarvakning

  • Sálarrannsóknarfélag Suðurnesja 13 Víkurbraut Keflavík, Reykjanesbær, 230 Iceland (map)

Sálarrækt – Andleg vitundarvakning

Sjálfsrækt fyrir líkama, huga og sál

Skráning á heimasíðu: https://www.srfsn.is/namskei eða 768-3348

Ertu næm/ur? Ertu forvitin/n að skoða þetta nánar?

 

Hvort sem þú ert að taka þín fyrstu skref inn í andlega vinnu eða hefur góða reynslu af þessum heimi og vilt dýpka þekkingu þína, þá finnur þú eitthvað fyrir þig á þessu námskeiði.

Sálarrækt er námskeið fyrir fólk sem vill gefa sér rými til að staldra við, hlusta inn á við og kynnast sér á dýpri hátt og samhliða því að efla og styrkja það sem býr innra með sér.

 

Við ætlum við að fara í skemmtilega sjálfsrækt þar sem:

- Við beinum athyglinni inn á við.

- Við hlustum á hjartað.

- Við leyfum sálinni að vera með okkur í þessu ferðalagi.

 

Þér er gefið rými þar sem þú færð tækifæri til að skoða hvað hefur mótað þig, hvað heldur aftur af þér og hvað vill fá að vaxa. Í þessari sjálfsrækt færð þú tækifæri til að efla líkama, huga og sál á þann hátt að það þjóni þér sem best á þeirri vegferð sem þú ert á núna.

 

Í Sálarrækt vinnum við með manneskjuna sem heild – líkama, huga og sál. Þar sem orka okkar og andleg vitund fær að njóta sín ásamt þeim tilfinningum sem sækjast eftir nærveru og heilun. Við skoðum hvernig reynsla lífsins, tilfinningar, ótti, væntingar og gömul mynstur geta haft áhrif á líðan okkar og tengingu við okkur sjálf.

 

Jafnframt gefum við rými fyrir heilun, hreinsun og losun á því sem við þurfum ekki lengur að bera með okkur og þjónar ekki lengur okkar vegferð eða tilgangi.

 

Á þessu námskeiði göngum við út frá þeirri djúpu sannfæringu að þú sért meira.

Líkami þinn er farartæki.

Hugur þinn er verkfæri.

En kjarni þinn – sálin – er ljósið sem gefur þessu öllu merkingu.

 

Þegar þú tengist sálinni vaknar innri kraftur sem breytir ekki aðeins þér, heldur hefur áhrif langt út fyrir þig sjálfa/n – til þinna nánustu og til framtíðarkynslóða.

Heimurinn þinn breytist þegar þú finnur sjálfa/n þig og leyfir þér að skína skært – svo að aðrir gefi sér leyfi til að gera slíkt hið sama.

 

Á námskeiðinu munum m.a. fara í eftirfarandi:

• Hugleiðslu, kyrrð og jarðtengingu.

• Heilun og orkumeðvitund.

• Fræðsla um orkustöðvarnar.

• Hreinsun, losun og endurnýjun.

• Andlega vernd og heilbrigð mörk.

• Innsæi og traust á eigin upplifun.

• Tilfinningavinnu og sjálfsskoðun.

• Tengingu við eigin sál og andlega hlið.

• Fræðslu um næmni okkar, andlegar tengingar og nýtingu skynfæra sem öllum er gefið en ekki allir meðvitaðir um.

• Ýmis verkfæri og aðferðir bæði andleg og efnisleg sem nýtast okkur í daglegu lífi.

 

Í Sálarrækt mætum við okkur sjálfum og öðrum af auðmýkt, þakklæti, góðsemi og velvilja. En við ræktum jafnframt með okkur áræðni og þrautseigju til að horfast í augu við það sem þarfnast athygli okkar og tökum skref í átt að andlegum vexti.

 

Vöxtur gerist ekki alltaf með því að bæta einhverju nýju við. Stundum hefst hann þegar við gefum okkur leyfi til að sleppa því sem hefur byrgt okkur sýn.

• Langar þig að skoða næmni þína og tengingar betur.

• Langar þig að fræðast meira um orkustöðvarnar.

• Finnur þú fyrir orku hjá þér eða í umhverfinu en ert ekki viss hvað þetta er eða vilt læra að vinna betur með þessa orku.

• Vilt þú styrkja innsæi þitt, innri ró og traust á þér.

• Vilt þú læra meira um andlega vernd og heilbrigð mörk.

• Þarftu á heilun og hvíld að halda.

• Vilt þú skilja tilfinningar þínar og viðbrögð við þeim betur.

• Finnur þú að eitthvað innra með þér kallar á breytingu, hvort sem það er vöxtur eða dýpri tenging.

 

Sálarrækt er rými þar sem þú mátt koma eins og þú ert – og getur hjálpað þér að færast nær þeim stað sem þú finnur að þér er ætlað að fara.

 

Ljóð eftir — Marianne Williamson

"Our deepest fear"

 

Our deepest fear is not that we are inadequate.

Our deepest fear is that we are powerful beyond measure.

It is our light not our darkness that most frightens us.

We ask ourselves, who am I to be brilliant, gorgeous,

talented and fabulous?

 

Actually, who are you not to be?

You are a child of God.

Your playing small does not serve the world.

There's nothing enlightened about shrinking so that other

people won't feel insecure around you.

 

We were born to make manifest the glory of

God that is within us.

 

It's not just in some of us; it's in everyone.

And as we let our own light shine,

we unconsciously give other people

permission to do the same.

 

As we are liberated from our own fear,

Our presence automatically liberates others.

 

— Marianne Williamson


Previous
Previous
7 October

Þróunarhópur -Sálarrannsóknarfélag Suðurnesja (4 af 9)

Next
Next
11 October

Sálarrækt – Andleg vitundarvakning