Back to All Events

Sálardans undir Bláum mána

  • Sálarrannsóknarfélag Suðurnesja 13 Víkurbraut Keflavík, Reykjanesbær, 230 Iceland (map)

31. maí opnum við rými fyrir frjálsan dans, röddina, líkamann og sálina undir orku “Blue Moon” eða undir Bláum Mána 🌕

🌕 Blue Moon er stjarnfræðilegt hugtak fyrir auka fullt tungl í sama mánuði, sem gerist sjaldan — þess vegna kemur enska orðatakið “once in a blue moon” sem merkir eitthvað sjaldgæft.

Blár máni ber orku:

innsæis

tjáningar

losunar

sannleika

og þess að stíga út úr gömlum mynstrum og leyfa sér að sjást og heyrast.

Þema kvöldsins verður blái liturinn og hálsstöðin — orkustöðin sem tengist:

💙 röddinni

💙 sannleikanum

💙 sjálfstjáningu

💙 sköpun

💙 hugrekkinu til að vera við sjálf

Í Sálardansi er engin „rétt“ leið til að dansa.

Við fylgjum líkamanum, flæðinu og innsæinu.

Við munum:

✨ dansa frjálst

✨ hreyfa orkuna í gegnum tónlist og líkama

✨ syngja með lögum sem opna röddina

✨ anda

✨ losa um hömlur

✨ og skapa öruggt rými þar sem við megum vera nákvæmlega eins og við erum.

Þú þarft enga reynslu. Bara opið hjarta og vilja til að mæta sjálfri/sjálfum þér í flæðinu. 💫

💙 Klæddu þig endilega í bláu ef þú vilt tengjast orku kvöldsins enn dýpra.

Blár Máni minnir okkur á:

Rödd sálarinnar vill fá að heyrast. 🌕

Velkomin í kvöld þar sem við dönsum, finnum, syngjum og leyfum sannleikanum að flæða.

Sara Dögg yin-yoga kennari, heilari og sálardansari heldur utan um rýmið, leiðir tónlistarflæði og mjúkar jógateygjur í lok tímans.

Skráning er á síðu https://www.srfsn.is/namskei

Sálarrannsóknarfélagsins kostar kr. 2500.- á viðburðinn.

Previous
Previous
31 May

Námskeið í Almennri heilun fyrir Byrjendur (seinni dagur)

Next
Next
2 June

Opinn bænahringur