Skapandi vinnustofa
Fjöldi þátttakenda er 8 manns
Verð 18.000,- (ATH hluta endurgreiðslu verkalýðsfélaga.)
Skráning á www.srfsn.is/namskei
Mæting kl, 12:45.
Í gegnum nýsköpunar og þróunarstarf sitt sem Völva hefur Bryndís Fjóla síðustu árin safnað vatni úr fallegum uppsprettum, lækjum, ám, fossum og jökul fjlótum á Íslandi. Hún kynnir þig fyrir vatninu í fallegum glerglösum, ásamt blýanti, pensli, vatnslitapallettu og vönduðum pappír til að vinna á.
Bryndís Fjóla hefur í samstarfi og leiðsögn frá álfum og huldufólki á Íslandi í tugi ára, fundið leið til þess að vinna með hreina íslenska vatnið sem einstaka og verðmæta auðlind með frásagnargáfu. Þessi vitundarvakning hefur vakið mikla athygli sem aðferð við að skynja sjálfan sig og náttúruna saman og er í dag að vekja alþjóðlega athygli og fá verðskuldaða umfjöllun í virtum erlendum fjölmiðlum.
Vatnið hefur sýnt að það getur vakið öll skilningarvit þín, skynjun þín meðtekur hvaðan vatnið er, frá hvaða læk, uppsprettu eða jökulfjóti. Hvað vill vatnið segja þér um sig eða þig.
Álfar og huldufólk koma oft við sögu þegar við tengjum okkur við vatn sem er safnað við þeirra búsvæði og við tengjum okkur einnig við þá heima á námskeiðinu og ræðum þá tilfinningu sem þar er að finna.
Þú munt koma þér á óvart með þeirri einstöku tilfinningu sem vatnið getur fært þér.
Vatnið leiðir þig, losar um hömlur og veitir þér einstakt upphaf í vinnu með lit, texta eða hönnun.
Þú getur fundið lyktina af vatninu, dýpt penslinum í það og leyft því að flæða frjálslega á vatnslitapallettuna – þannig fær vatnið að tjá sig til þín og með þér á pappírnum.
Þetta hvetur þátttakendur til að virkja innsæi sitt, samband við náttúruvætti, náttúruna og okkur sjálf. Það er afar mikilvægt að við eflum hæfileika okkar til þess að lesa í náttúruna og umvefja hana með virðingu ábyrgð – ekki síst fyrir komandi kynslóðir.
Verkefnið býður upp á jafnan aðgang fyrir alla, óháð menningu og tungumáli, til að túlka umhverfi sitt.
Umsögn frá Þórunni Björnsdóttir, frá vinnustofu í London 2024.
Að vinna með vatn opnaði fyrir mér nýja vídd í tengingu minni við náttúruna. Það að eitthvað eins hversdagslegt og vatn beri með sér minningar, tilfinningar og náttúruvætti jók skilning minn og innsæi á að hver einasti hluti af náttúrunni skiptir máli. Ég kom af námskeiðinu með dýpra innsæi og skynjun á náttúrunni og nátturuvættunum sem búa í henni.

