Þú ert boðin/n í Sálardans á fullu tungli – heilandi og frelsandi dansviðburð þar sem við komum saman og nýtum kraftmikla tunglorkuna til að tengjast líkama, hjarta og sál.
Dansinn er eitt elsta tjáningarform mannkyns. Í gegnum hreyfingu getum við losað tilfinningar, hrist af okkur spennu, styrkt lífsorkuna og komið okkur aftur í samband við okkar innri visku. Í sálardansi er engin kóreógrafía og engar kröfur – aðeins rými til að vera þú, eins og þú ert.
Allir geta tekið þátt
Engin danskunnátta er nauðsynleg. Þú fylgir þínum líkama, þínum takti og þinni orku. Það er ekkert rétt eða rangt – aðeins heiðarleg hreyfing.
Flæði viðburðarins
Við byrjum á því að tengja okkur saman, jarðtengja líkamann og setjum ásetning. Síðan förum við inn í frjálsan sálardans, þar sem tónlist og tunglorkan leiða okkur áfram. Við ljúkum stundinni með léttum jógateygjum og ró, svo orkan fái að setjast mjúklega í líkamann.
Af hverju fullt tungl?
Fullt tungl magnar tilfinningar, meðvitund og losun. Það styður okkur í að sleppa því sem þjónar okkur ekki lengur og fyllast nýjum krafti, skýrleika og lífsgleði.
Komdu eins og þú ert
Hreyfðu það sem vill hreyfast.
Leyfðu sálinni að dansa.
Sara Dögg yin-yoga kennari, heilari og sálardansari heldur utan um rýmið, leiðir tónlistarflæði og mjúkar jógateygjur í lok tímans.
Skráning er á síðu Sálarrannsóknarfélagsins. https://www.srfsn.is/namskei
kostar kr. 2500.- á viðburðinn.

