Back to All Events

Lærðu að hlusta á taugakerfið ( 5 af 6 )

  • Sálarrannsóknarfélag Suðurnesja 13 Víkurbraut Keflavík, Reykjanesbær, 230 Iceland (map)

Taugakerfið talar ekki í setningum. Það talar í tilfinningum, líkamsviðbrögðum, spennu, þreytu, tengslum, löngun, mörkum og þögn. Á þessu námskeiði lærum við að hlusta.

Þetta er ferðalag inn á við þar sem lögð er áhersla á að skapa öruggt rými fyrir það sem býr innra með hverjum einstaklingi. Í gegnum tímana gefst þátttakendum tækifæri til að staldra við og dvelja með þeim tilfinningum, minningum og upplifunum sem kalla á athygli.
Hver tími byggir á þeim fyrri og styður við hæga og náttúrulega uppbyggingu innri tengsla. Smám saman dýpkar skilningurinn á eigin líðan og traustið á því sem býr innra með okkur.
Að sex tímum loknum er markmiðið að þátttakendur hafi styrkt tengsl sín við eigið innra sjálf og fundið betur fyrir þeirri innri visku sem býr í öllum og getur orðið leiðarljós á áframhaldandi vegferð lífsins.
Verkfærin sem notuð eru á námskeiðinu byggja á rannsóknum og hafa sýnt fram á meðferðarlegt gildi. Hver tími verður þannig ekki aðeins meðferðartími heldur einnig skref í átt að aukinni sjálfsþekkingu, meiri sjálfsmildi og dýpri tengingu við eigin innri heim.
Byggt á Áfallamiðaðri nálgun (Trauma-Informed Approach), nútímalegri þekkingu á taugakerfinu og áhrifum áfalla.
Compassionate Inquiry nálgun Gabor Maté
Parta-vinnu og samþættingu samkvæmt Janina Fisher
Búddískum íhugunar -og núvitunarfræðum sem eiga sér 2500 ára sögu

Fyrir hverja: Námskeiðið er hugsað fyrir konur á öllum aldri sem vilja staldra við og læra að þekkja tungumál taugakerfisins.

Námskeiðið er sex skipti, tvo tíma í senn og til að þú fáir sem mest út úr efninu er gott að vinna þau heimaverkefni sem mælt er með. Innifalið er dagbók til að skrifa þær hugleiðingar sem koma upp og bæklingur með efni námskeiðsins. Hámarskfjöldi 10 konur .

Verð: 39,900 -
Skráning hafin:
https://www.srfsn.is/namskei eða í síma 768-3348.


Skráning á sér stað eftir að greitt er staðfestingargjald: 8000. Athugið að mörg stéttarfélög taka þátt í kostnaði við námskeið af þessu tagi. Við hvetjum þátttakendur til að kanna styrkjamöguleika hjá sínu stéttarfélagi.

Um okkur:

Ragnhildur Birna Hauksdóttir: er fjölskyldufræðingur og leikskólakennari og hefur menntað sig í áfallafræðum janine Fisher Robert Rhorton og síðast Gabor Mate. Hún hefur einnig að baki ársnám í búddískum íhugunarfræðum sem byggja einnig á taugavísindum. Hún hefur áralanga reynslu af því að vinna með einstaklinga, fjölskyldur og hópa.

“Leiðin heim er fyrir mig dýrmætasta ferðalag sem ég hef lagt í. Áföll, kulnun og rof hafa leitt mig inn í vinnu sem byggist fyrst og síðast á heiðarleika, við sjálfa mig og aðra. Þakklæti er það sem eftir situr og hlakka ég til að fá að deila þessu ferðalagi með þeim sem það kallar á.”

Íris Arnardóttir er náms- og starfsráðgjafi og leikskólakennari. Íris hefur auk þess menntað sig í Núvitund m.a.frá Bangor Univeristy, hún hefur lokið sjö námskeiðum í CranioSacral Therapy. Á síðast ári lauk hún einnig námskeiði í Psychedelic therapy assistant frá Hjartasetrinu og er nú aðstoðarkennari í því námi. Nýverið lauk hún árs námi hjá Gabor Maté í áfallafræðum og er Trauma informed Therapist.

“ Innri viskan er röddin sem ég fann undir þykku lagi af kulnun, áfallastreituröskun og að lifa hraðar en ég réð við. Að læra að hægja á mér, hlusta inná við hefur því verið mín leið til að tengjast aftur sjálfri mér. Fyrir mér er Innri viskan höndin sem leiðir mig heim í sjálfið. Með þakklæti hlakka ég til að styðja aðra á þessari vegferð.

Húsið opnar 30 mínútum áður

Sálarrannsóknarfélag Suðurnesja

Previous
Previous
27 October

Lærðu að hlusta á taugakerfið ( 4 af 6 )

Next
Next
10 November

Lærðu að hlusta á taugakerfið ( 6 af 6 )